Book this cottage

Price from: €0.00

Choose available check-in and
check-out dates to continue.

Description

Sumarhúsið er 34 fm að stærð og samanstendur af tveimur einingum. Önnur er dagstofa með svefnrými. Þar er gott tvíbreytt rúm, lítið skrifborð og stólar. Hitt rýmið er gámaeining sem samanstendur af eldhúsi og baðherbergi með sturtu. Þegar gengið er inn í gáminn er baðherbergið á vinstri hönd en eldhús beint af augum. Í eldhúsi er eldavél með tveimur hellum, ísskáp, örbylgjuofni, skápaeiningu og eldhúsborði og stólum. Leirtau, diskar og bollar og pottar eru í rýminu. Í baðherbergi er góð sturta, salerni og vaskur. Rafmagn, hiti og ljósleiðari er á staðnum.
Sólpallur tengir einingarnar saman. Þar er notalegt að sitja úti við og njóta útsýnis og kyrrðar í fallegri náttúru með útsýni til sjávar. Húsakosturinn er einfaldur í sniðum en bæði notalegur og praktískur. Hann hentar vel fyrir par.

Sumarhúsið er staðsett á Mýrum á Vesturlandi um 30 km frá Borgarnesi. Staðsetningin hentar til að fara í dagsferðir t.d.. út á Snæfellsnes eða í Borgarfjörð eða njóta nátturunnar sem staðurinn hefur upp á að bjóða.

Lengd leigutíma er samkomulagsatriði. Lágmark eru 2 nætur.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 6986181 eða í tölvupósti [email protected].

Good to know

Check-in time: 15:00
Registered: 07 Jun 2026
Last update: 13 Jun 2026
Size: 34 m2
Check-out time: 12:00
Minimum stay:
 2 nights (Summer)
 0 nights (Winter)
Location of keys:

Amenities

Beds

  • 1x Double bed
  • 1x Mattresses

Cancellation policy


Moderate

A reservation can be cancelled with 14 days or more prior to the scheduled arrival date and 100% of the full rental price will be repaid.
Owner
Björg

1 cottages on Bungalo

Similar cottages

Hítarneskot, House by the ocean

311 Borgarnes

(2 ratings)