Book this cottage

Price from: $467.26

Choose available check-in and
check-out dates to continue.

Description

Innst inn í skógarrjóðri í landi Húsafells er Leóstaðir er 131 fm fallegt hús þar sem vandað hefur verið til alls. Þegar komið er inn í húsið blasir við opið rými í stofu og eldhús. Í stofunni er 65" sjónvarp, góður sófi með legubekk. Þægilegur húsbóndastóll úr leðri.

Svefnherbergisgangur með 3 rúmgóðum herbergjum. Rúmstæðin geta verið stök/ single eða tvöföld/double. Hægt er að fá barnarúm og barnastóll er líka í húsinu, Öll rúmin eru með fjarstýringu til að hækka höfuð eða fótagafl. Þar baðherbergi með mjög góðri sturtu og speglaskápur með góðu skápaplássi.

Þvottavél og þurrkari er í þvottahúsinu, líka þvottaefni og snúrur.

Á Leóstöðum er gert ráð fyrir að öllum líði vel. Eigendur gera sérstaka kröfu til allra sem leigja húsið að ganga vel um. Það er óskrifuð regla sem ber alltaf að hafa í huga.

Eldhúsið er vel búið tækjum, eldavél, ofn brauðrist, kaffivél, góðir pottar og pönnur, vöfflutæki og pönnukökupanna, ísskápur og frystir. Hrærivél og blandari. Fólk á að njóta sín við matargerð og slappa af. Leigjendur þurfa aðeins að koma með ferska matvöru og vörur sem þarf í kæliskáp.
Fallegur borðbúnaður er fyrir 12 manns.

Úr stofunni gengið út á verönd og þar er úr er gott grill og garðhúsgögn fyrir 6 manns. Heitur pottur er það og sérstakt sturtuhús. Í sturtuhúsinu fer fólk í sundfötin, þar er sturta og venjulegt baðherbergi. Toppurinn þessu litla húsi er íslenskt eimbað, þar sem hægt er að slaka vel á.

Innifalið í verði:
- Sængurver og handklæði (stór baðhandklæði og fyrir handþurrk)
- Viskustykki og eldhústuskur
- Barnarúm og barnastóll
- Grunnmatvörur s.s. hveiti, sykur, kakó, lyftiduft, matarsódi, kanil, salt og pipar, nokkur krydd, kaffi, te, matarolía.
- Þrif og hreinlætisvörur, ryksuga og skúringartuskur,
- Ruslapokar og wc pappír

Í Húsafelli er gott útivistarsvæði og þar er hægt að fara í sund, golf, veiði og gönguferðir í grenndinni.

Good to know

Check-in time: 15:00
Registered: 08 Sep 2017
Last update: 10 Apr 2018
Check-out time: 12:00
Minimum stay: 1 nights
Location of keys: Contact owner for keys

Amenities

Cancellation policy


Strict

A reservation can be cancelled 30 days or more prior to the scheduled arrival date and 80% of the rental price will be repaid.

Similar cottages

Cottage in West Iceland

320 Borgarfjörður

(28 ratings)

Vilmundarstaðir

320 Borgarbyggð