Eignin okkar er staðsett á bóndabæ frá landnámsöld, í fögru og rólegu umhverfi.
Um er að ræða Polar hjólhýsi með hjónarúmi, kojum fyrir 2 börn (í fullri lengd), fullbúið eldhús, wc og setukróki þar sem vel er pláss fyrir 4. Upphitun er með Alde vatnshitakerfi, Húsið er byggt til nota í allt að mínus 30 gráðu frosti svo það fer vel um fólk að vetri til líka.
Það er heitur pottur til afnota svo og sturta með hitaveituvatni í gám rétt hjá.
Eignin okkar býður upp á margar fagrar gönguleiðir þar sem enginn er á ferli nema í leitum að hausti.
Þá er leiksvæði fyrir börnin með rólum, trampolíni og kastala.
Hægt er að klappa kindum í girðingu stutt frá.
Gæludýr/hundar meiga koma með eigandum sínum en það er ófrávíkjanlegt skilyrði að hundar séu í taumi.
Hægt er að leigja hjá okkur Fatbike reiðhjól sem henta vel til hjólreiða í ójöfnu landslagi og á malarvegum og kostar sólahringurinn 10.000 kr. á hjól.
Stutt er í Búðardal (24 km) en þar er Krambúð Samkaupa, veitingastaður, Vínlandssetur og sitthvað fleira. Þá eru Eiríksstaðir í Haukadal í um 15 km fjarlægð, Rjómabúið Erpsstaðir um 6 km og sundlaug að Laugum í um 45 km fjarlægð. Í Sælureitnum Árbliki er kaffihús, sýningar, handverk og hægt að kaupa súpu og brauð ásamt vörum beint frá býli. Það erum u.þ.b. 7 km.
Velkomin í sveitina!
Good to know
Check-in time: 16:00 Registered: 24 Jun 2020 Last update: 12 Jul 2024
Check-out time: 11:00 Minimum stay:
2 nights Location of keys: Á staðnum
Amenities
Beds
2x Double bed
1x Bunk bed for 2
Cancellation policy
Flexible
A reservation can be cancelled with 72 hours (3 days) or more prior to the scheduled arrival date and 100% of the full rental price will be repaid.